Er copy/paste loksins á leiðinni?

iphone-keyboard.jpg

Ný uppfærsla af iPhone stýrikerfinu, 2.1, er komin í hendurnar á nokkrum forriturum og er von á henni á næstunni. Í henni er að finna nýja CoreLocations eiginleika sem gefur til kynna að “turn by turn” GPS sé mögulega á leiðinni. Einhver grúskari hefur svo fundið vísbendingar um copy/paste í nýju útgáfunni, eitthvað sem margir hafa beðið en Apple menn hafa látið sitja á hakanum.