Aurora

Aurora er vekjaraklukka fyrir Makkann. Forritið er lítið og nett, er ókeypis og er Universal.

Forritið býður upp á ýmsa möguleika. Til dæmis getur það látið iTunes fara í gang og spila valinn lagalista á tilteknum tíma. Mjög gott fyrir þá sem vilja vakna á morgnanna við ljúfa tóna.

En auðvitað eru margir sem hafa slökkt á tölvunni sinni á næturnar eða hafa svæft hana. Það er allt í lagi, því að Aurora getur vakið tölvuna!

Forritið hefur marga aðra eiginleika, til dæmis:

  1. Fyrir þá sem nota EyeTV; Aurora getur sett það í gang á gefnum tíma.
  2. Ef þú vilt ekki að tónlistin fari í gang snögglega, geturðu látið hljóðstyrkinn aukast smám saman. Þú getur meira að segja stillt hversu hratt hljóðstyrkurinn eykst!
  3. Sumir vilja „snooza“ vekjarann sinn, og býður forritið uppá það. Hægt er að gera það með lyklaborðinu, en það er einnig er hægt með því að nota fjarstýringu tölvunnar (mjög gott ef þú sefur í smá fjarlægð frá tölvunni).
  4. Svo má auðvitað hafa eins marga vekjara og maður vill. Mjög gott fyrir þá sem vilja vakna á mismunandi tíma, eða fyrir þá sem vilja minna sig á eitthvað mikilvægt.

Þeir sem hafa áhuga geta sótt forritið hér.

Stafsetning 2004

Stafsetning 2004 er hugbúnaður fyrir Macintosh-tölvur sem getur lesið yfir íslenska stafsetningu.

Stýrikerfið Mac OS X styður svokallaðan kerfislægan yfirlestur en það táknar að hugbúnaðarframleiðendur þurfa ekki að smíða sinn eigin yfirlestur heldur geta þeir látið stýrikerfið sjá um hann. Orð sem eru álitin rangt stafsett eru undirstrikuð með rauðu. Ef smellt er með hægri músarhnappi eða ctrl-smellt þá birtist listi með tillögum að réttri stafsetningu. Einnig er hægt að hafa lítinn glugga opinn sem birtir tillögurnar jafn óðum.

Stafsetning 2004 getur lesið yfir innsleginn texta í flestum nýrri forritum. Þannig geturðu látið lesa stafsetningu tölvupósts yfir jafn óðum í Mail, spjallið í Adium og iChat eða ritgerðina í TextEdit eða Nisus Writer Express. Þar sem Safari styður þetta einnig er lítið mál að lesa yfir texta sem sleginn er inn á vefsíður. Þannig má t.a.m. lesa yfir stafsetningu á fréttum og efni sem sent er inn í vefumsjónarkerfi, lesa yfir „blogg“ nú eða texta sem er sendur inn á umræðuvefi.

Hugbúnaðurinn getur einnig lesið yfir Word-skjöl.

Nánar á stafsetning.is.

Adium

Adium er ókeypis forrit sem tengir þig við vinsælustu spjallþjónusturnar á vefnum. Það styður MSN, AIM, Yahoo, Google Chat, .Mac, ICQ, Jabber o.fl.

Adium býður upp á margt fleira, t.d. er notendaviðmótið algjörlega stillanlegt, þannig að hægt er að hafa það nákvæmlega að eigin þörfum. Til dæmis er hægt að hafa iChat broskalla í stað MSN broskalla o.s.frv.

Forritið býður einnig upp á samræður í flipum, þ.e. þú getur haft samræður við marga aðila en bara með einn glugga opinn. Til að skoða forritið nánar kíkið á vef þess.

Þar að auki er vefur til með aukahlutum, AdiumXtras.com

VLC

VideoLAN Client er eitt vinsælasta afspilunarforritið á Mac OS X og Windows.

Það býður upp á vídeó-afspilun á ýmsum sniðum, m.a. DivX, Xvid, avi, mov, mpeg og nánast öll tiltekin snið ásamt því að geta spilað DVD og VCD diska. Einnig býður það uppá að sýna myndskeið með undirtitli og að sýna það í fullri skjástærð.

Ef tölva notendans styður s.k. “dual-display” er hægt að sýna myndina í fullri stærð á sjónvarpinu (t.d.) og á meðan hægt að vinna í tölvunni á aðalskjánum án truflunar.

Forritið er lítið í stærð, er ókeypis og hægt að nálgast hér

Word Translator X

Word Translator hefur verið til í langan tíma á makkanum, en notendaviðmótið hefur verið bætt til muna og orðalistum í gegnum árin.

Úrvalið vantar ekki þar sem forritið býður uppá m.a. íslensk-, þýsk-, dönsk-, spænsk- og latínu-enska orðabækur og öfugt, en hægt er að ráða algjörlega hvaða orðabækur maður vill hafa innsettar. Þær eru uppfærðar reglulega og hægt að nálgast þær á heimasíðu Word Translator.

Engu að síður er höfundur forritsins íslenskur og selur þetta frábæra forrit á aðeins $39. En athuga skal að forritið hefur takmarkanir, og býður ekki uppá orðskýringar eins og hefðbundnar orðabækur.

Lágmarkskröfur er OS X 10.3 (Panther) og hægt er að nálgast prufueintak hér

MacJournal

macjournalMacJournal er lítið en mjög öflugt ritvinnsluforrit.

Það býður uppá mjög marga möguleika, en það hentar sérstaklega vel fyrir þá sem vilja halda vel utan um glósurnar sínar og dagbók. Einnig virkar það vel sem minnisbók og til að geyma mikilvægar upplýsingar.

Ekki óttast, en forritið býður uppá læsingu með lykilorði og þjöppun svo að aðrir komist ekki í bókina. Forritið býr til gagnagrunn í einu skjali og heldur því vel utan um öll skrif ásamt því að geta léttilega gert backup.

Fyrir utan alla þessa möguleika er hægt að skrifa blogg á því, en það tengist bloggsíðum eins og Blogger og LiveJournal.

Einnig styður það .Mac sem gerir manni kleyft að búa til bloggsíðu á .Mac þjónustunni. Þú getur einnig flutt út texta til að deila þeim með öðrum á Word-, html-, og RTF-formatti.

Glæsilegt forrit á góðu verði. Prufueintak að sjálfsögðu til staðar.

Heimasíða MacJournal

Rapidweaver

Þetta litla en ótrúlega öfluga forrit er eitt það besta og einfaldasta vefsíðuforrit sem til er á makkann.

Rapidweaver gefur þér kost á að búa til heimasíðu án þess að kunna nokkuð í forritun og gefur þér kost á að velja á milli margs konar þema. Í forritinu er hægt að stofna venjulegar html síður, bloggsíður, myndasafn og margt fleira.

Allt þetta kostar ekki meira en $34.95, en einnig er hægt að prófa forritið með takmörkunum. Til að lesa nánar um forritið kíkið á heimasíðu Realmac Software

Skype

Nauðsynlegt forrit fyrir þá sem vilja spjalla (tala) í gegnum netið, en með notendanafni getur maður nýtt þann möguleika sem stofnað er auðveldlega við uppsetningu.

Skype tengist beint við tölvuna sem þú talar við, þ.e. svo kallað “peer-to-peer” forrit sem nýtist vel í gagnaflutningum.

Nýjustu möguleikar þess er stuðningur fyrir vefmyndavél og símsvara, sem er mjög þægilegur möguleiki fyrir lítil fyrirtæki sem eru með viðskiptivini víða um heim. Ókeypis er að hringja á milli tölva en einnig er hægt að hringja í GSM og heimasíma um allan heim á mjög lágu verði, en til þess þarftu kreditkort til að hlaða Skype reikninginn þinn.

Heimasíða Skype

Transmit

Eitt þægilegasta FTP forritið sem er til á markaðinum. Það er hratt, geymir addressur í “Favourites” þannig að hægt er að hafa lista af FTP miðlurum og tengst þeim einfaldlega með því að tvísmella á þá.

Besti kostur forritsins er notendaviðmót þess þar sem hægt er að fletta í Finder í sama glugga og yfirlit FTP miðlarans, margar FTP tengingar í einu, og “Sync” (þ.e. samstilling á möppum, þannig að breytingar á upphaflegu möppunni færast í möppu á FTP miðlara eða öfugt).

Einnig býður Transmit uppá “Widget” og með því er einfaldlega hægt að draga skjal eða möppu á ákveðinn miðlara án þess að opna forritið sjálft. Stuðningur við iDisk (.Mac) er einnig til staðar.

Frábært forrit fyrir þann sem er mikið í FTP gagnaflutningum. Kostar aðeins $30 og auðvitað hægt að niðurhala prufueintaki á heimasíðu þess.

Handbrake

Eitt þægilegasta forritið til að setja DVD myndirnar þínar á tölvutækt form.

Þ.e. það breytir því í allt að 15-falt minna skjal á harða disknum þínum en skilar næstum því jafn góðum gæðum. Forritið umbreytir myndinni í MPEG-4 (ásamt fleiri valmöguleikum eins og H.264) og hljóðinu í AAC (sem iTunes notar sem staðal).

Hraðinn á forritinu fer eftir tölvu viðkomandi en hver mynd ætti ekki að taka yfir 1-3 klst að umbreyta (H.264 undantekning) á nýlegri tölvu, en auðvitað fer það líka eftir lengd myndarinnar.

Einfalt í uppsetningu og í raun er engri þekkingu krafist, því einfaldlega er DVD diskur settur í tölvuna, forritið opnað og smellt á “convert”. Ókeypis forrit og hægt að nálgast hér.

AppZapper

Forritið AppZapper er hannað til að fjarlægja allar auka skrár sem forrit setja inn, svo sem prefrence skrár, application support skrár og fleira í þeim dúr.

Forritið bíður einfaldlega uppá lítinn glugga sem þú dregur það forrit sem þú villt losna algjörlega við yfir í og það finnur skárnar og býður uppá að henda skránum.

Forritið er shareware og er hægt að sækja það hér.

AppleJack

Applejacker viðhaldstól sem að keyrir í Single User texta viðmóti kerfisins og inniheldur einfaldan valseðil til að velja hinar ýmsa viðhaldsaðgerðir sem gott er að keyra með reglulegu millibili.

Applejack hefur fimm megin aðgerðir:
1. Keyra viðhald fyrir disk og skráarkerfi (repair disk)
2. Keyra viðhald fyrir heimildir (repair permissions)
3. Hreinsa cache skrár
4. Aðgæta hvort að prefrence skrár eru skemmdar
5. Fjarlægt swap skrár

Leiðbeiningar fyrir notkun:
1. Sækja Applejack hér
2. Opna AppleJack.pkg
3. Smella 3x á Contine og svo Agree. Þar mæst smella á continue og svo install.
4. Slá inn lykilorðið þitt (ef ekkert lykilorð er valið smella þá á bara á enter án þess að rita neitt).
5. Smella á close.
6. Fara í Eplið efst vinstramegin á skjánum og velja Restart/Endurræsa
7. Um leið og vélin endurræsir (gefur frá sér endurræsingar hljóð) skaltu halda inni command (takkinn með eplinu og slaufunni) og S takkanum saman.
8. Vélin ræsir þá upp í texta ham og gefur prompt sem lítur svona út: #root >
9. Skrifaðu inn eftirfarandi línu:
applejack auto restart
10. Vélin á þá að keya fjölda aðgerða þannig að best er að láta hana bara standa þar til að hún endurræsir sig að nýju og þá ætti hún að vera aðeins sprækari.

Nikotel X

Nikotel X gefur þér möguleika á að hringja um allan heim í GSM eða heimasíma í gegnum netið. Forritið er þægilegt í notkun.

Til að hringja þarftu að skrá þig hjá þeim og á vef þeirra geturðu hlaðið reikning þinn með kreditkorti (lágmark $15).

Verðskrá þeirra er mjög lág og gæðin eru oftast mjög góð, t.d. kostar 1,5 cent (USD) á mínútu að hringja til Bandaríkjanna. Til að geta notað forritið þarftu hljóðnema (og heyrnartól).

Til að sjá verðskrá og fleira, kíkið á heimasíðu Nikotel.


Kommentið á thors:


þótt Kjörís kaupi sér belju, þá þýðir það ekki að hún fari að mjólka súkkulaðiís upp úr þurru
Nánar..

Nýjasta Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!