iPhone 2.0 aflæsingartól loksins komið - lesið meira..
Ný útgáfa er komin út fyrir iPhone (2.0) og hana er hægt að aflæsa með fyrstu kynslóð af iPhone. Eins og stendur er ekki enn búið að aflæsa iPhone 3G, en Maclantic mælir sterklega með að fólk kaupi sér löglegan og ólæstan iPhone 3G í löndum á borð við Belgíu og Ítalíu (8GB kostar frá €499).

iPhone 1.1.2-1.1.4 hackaður! - Náið í ZiPhone forritið hér
iPhone-tengd efni á Maclantic.com
Vitneskjugrunnur fyrir iPhone - frábær grunnur fyrir alla
iPhone umræður - opin umræða fyrir alla
iPhone hack fréttir - nýjustu fréttirnar á íslensku
Almennar iPhone fréttir - almennar fréttir um iPhone
Helstu iPhone [hack] síður
ModMyiPhone - smellið á „Guides“ fyrir leiðbeiningar
Hack the iPhone - góðar leiðbeiningar á íslensku
iPhone Unlock - norskur snillingur með ýmis tips og fix
FAQ - Algengar spurningar
Er hægt að nota iPhone á Íslandi?
Nei*. Ekki nema að „hack-a“ hann.
Er komið hack fyrir iPhone sem hefur verið keyptur nýlega?
Já! Sjá hér.
Er einhver áhætta sem felst í því að hack-a iPhone?
Já, í versta tilfelli getur síminn eyðilagst og orðið ónothæfur. Þetta er þó mjög sjaldgæft og kemur oftast fyrir gallaða síma.
Get ég hack-að iPhone sem keyptur hefur verið í Evrópu?
Já! Sjá hér.
Í Frakklandi eru hinsvegar seldir opnir símar sem hægt er að nota með öðrum SIM-kortum. Verðið á honum er €649 og er einungis hægt að opna hann í gegnum iTunes Store í Frakklandi.
Get ég hack-að iPhone sem keyptur hefur verið í USA?
Já, ef hann er með útgáfu 1.1.3 eða lægri. Sjá hér.
Má ég uppfæra iPhone símann minn?
Ef síminn hefur verið hack-aður, má ALLS EKKI uppfæra hann. Þetta getur haft mjög slæm áhrif og jafnvel gengið frá símanum þínum.
Það eru og verða til leiðir til að uppfæra iPhone, en leiðbeiningar eru hægt að finna hér að ofan á t.d. ModMyiPhone. Ef þú treystir þér ekki í þessar aðgerðir skaltu finna einhvern með kunnáttu til að framkvæma þetta fyrir þig eða einfaldlega sleppa því þar sem auðvelt er að klúðra ferlinu.
Hverjar eru neikvæðu hliðarnar við að hack-a iPhone?
1) Ekki er hægt að uppfæra símann í gegnum iTunes og fá það nýjasta sem Apple hefur uppá að bjóða.
2) Maður rýfur ábyrgðarskilmála, þ.e. framleiðslugallar tækisins eru ekki í ábyrgð.
3) Viðgerðir geta ekki verið framkvæmdar af Apple hérlendis.
En hvað með ábyrgð?
Ef þú hefur löglega keypt iPhone frá Apple og opnað hann með löglegri aðferð (t.d. í Frakklandi í gegnum iTunes) þá er tækið með 1 árs ábyrgð í því landi sem það hefur verið keypt. Ef þú hefur hins vegar hackað símann, ertu því miður með enga ábyrgð.
Hvað mun iPhone til með að kosta hérlendis og hvenær verður hann fáanlegur?
Apple hefur ekki gefið út neina tilkynningu um það hvort eða hvenær hann verður fáanlegur hérlendis. Svarið er einfaldlega: ekki vitað!
Er iPhone með 3G?
Nei. Hann er hins vegar með EDGE (GPRS hérlendis) og innbyggt þráðlaust netkort (sem er mun betra og hraðvirkara en 3G).
Get ég notað GPRS á iPhone hérlendis?
Já. Fyrstu skaltu fara í Settings -> General -> Network -> EDGE
Ef þú ert hjá Vodafone þá skaltu skrifa gprs.is í APN, en ef þú ert hins vegar hjá símanum skal skrifa wap.simi.is.
Username og password skaltu skilja eftir autt.
Af hverju er iPhone ekki með 3G?
Vegna þess að núverandi 3G-flögur nota of mikla orku og gefa símanum þ.a.l. of stutta rafhlöðuendingu.
Þetta er þekkt vandamál meðal 3G síma, en nýjar flögur eru í þróun sem verða mun sparneytnari.
Fær iPhone 3G á næstunni?
Já, það má búast við uppfærslu sumarið 2008.
*hægt er að kaupa iPhone í Frakklandi sem virkar á öll SIM-kort. Verðið á honum er €649 og er einungis hægt að opna hann í gegnum iTunes Store í Frakklandi.


Það er einnig hægt að borga mér í formi hamborgara. Ef sú leið er farin þá myndi ég vilja fá hamborgara nr. 21 á Grillhúsinu á Tryggvagötu, medium-rare. Það eru 1645 kr. 


