Af hverju eru eru allir spenntir fyrir nýja iPhone? Er 3G og GPS virkilega nauðsynlegt?
Hér er útskýring á nokkrum hugtökum áður en lengra er haldið:
Hver er munurinn á iPhone, iPhone 3G og iPhone 2.0? (smellið)
Upphaf iPhone og saga hans
Í byrjun þegar Apple gaf út iPhone var hann einungis fáanlegur í örfáum löndum, en hakkarar og notendur í öðrum löndum voru fljótir að finna leiðir til þess að geta notað símann annars staðar í heiminum með eigin SIM-kortum. Einfalt var að kaupa símann á mjög lágu verði og labba með hann út án [allt að] 2ja ára samnings, en Apple og símfyrirtæki treystu á notandann til þess að ganga frá því í gegnum iTunes-forritið með hjálpa kreditkortaupplýsingum og öðru.
Þessu hefur að mestu leyti verið breytt í dag til þess að sporna við þessum „gráa markaði“ með því að láta kaupendur skrifa undir samning á staðnum við kaup á iPhone 3G. Þannig er verðið á iPhone 3G niðurgreitt að mestu því Apple selur símann til símfyrirtækja á X verði og leyfa símfyrirtækjunum að ráða verði að vissu marki og fyrirkomulagi varðandi samninga.
Í sumum löndum, eins og í Belgíu, eru lög sem banna þetta fyrirkomulag (þ.e. að binda viðskiptavini við ákveðið tæki og fyrirtæki í e-h tíma). Þ.a.l. er síminn mun dýrari í þeim löndum, en kosturinn er sá að notandinn hefur frelsið að velja um símfyrirtæki. Íslendingar kannast best við þetta fyrirkomulag, en erfiðara hefur reynst fyrir símfyrirtæki hérlendis að festa aðila við kaup á símtækjum. Þessu má í raun líkja við léttkaupum þar sem notandinn borgar ekki fullt gjald fyrir tækið en borgar það hægt og rólega niður til símfyrirtækisins í gegnum áskriftarleiðir. Í flestum tilvikum er þetta óhagstætt fyrir neytendur en virkar mjög vel í löndum eins og USA.
Af hverju ekki 3G í byrjun?
Það fyrsta sem fólk hneykslaðist á iPhone þegar hann kom út í júní 2007 var að það vantaði 3G. Margir símaframleiðendur voru nú þegar með 3G innbyggt í símum sínum og af hverju var fyrirtæki eins og Apple ekki búið að innleiða þessa frábæru tækni í iPhone?

Jú, ástæðan var nokkuð augljós. Rafhlöðuendingin á 3G var vægast sagt hræðileg, en orkunotkun 3G-korta á þeim tíma var gríðarleg og tæmdi rafhlöðu á símum á borð við Nokia N95 innan við 2-3 klst. Ekki yrði margur sáttur við iPhone með 2 klst rafhlöðuendingu..
Þökk sé stöðugri þróun í tækniheiminum hefur mönnum loks tekist að framleiða 3G kubba sem nota mun minni orku en hafa sömu hröðu virkni og áður. Apple var einfaldlega að bíða eftir því.
Týnd/ur? GPS kemur til bjargar!
Margir þekkja GPS hugtakið sem leiðavísir í bílum sem hefur innbyggt kort og mjúka rödd sem segir þér hvenær skal beygja til hægri eða vinstri. GPS er staðsetningarbúnaður sem hægt er að nota á ýmsa vegu.
Apple gerði lítið úr GPS möguleika iPhone 3G ef miðað er við kynningu Steve Jobs á tækinu á WWDC í júní.
GPS í iPhone 3G er aðallega ætlað vegfarendum á vappinu samkvæmt prófunum hjá notendum. Það gæti einnig hentað þeim sem eru keyrandi og hafa ekki hugmynd um staðsetningu sína.
En af hverju er þetta ekki bara eins og okkar hugmynd um GPS, sem getur leiðbeint mér hvert ég á að fara þegar ég er að keyra? Ástæðan er mjög líklega sú að þróunin á GPS-kubbum er rétt að byrja í smáum tækjum á borð við iPhone og það nær einfaldlega ekki að uppfæra upplýsingarnar nógu hratt.
Ástæðan gæti einnig verið að smæð GPS-loftnetsins í iPhone hafi stór áhrif og ef svo reynist gæti hugsast að hægt verði að nota dock-tengi tækisins til þess að tengja við loftnet í bílum og þannig notað öflugri hugbúnað til þess að leiðbeina manni.
Ókei, ókei.. en hvað er svona spennandi við nýja iPhone?
Komum okkur að merg málsins og gröfum djúpt í rætur iPhone 3G og hvort hann sé virkilega það sem þú, hvort sem núverandi iPhone-notandi eða aldrei átt iPhone, ert að leita að.
- Margir hnökrar frá eldri síma hafa verið lagfærðir eins og staðsetningartækið í Google sem notaði Wi-Fi og GSM-senda sem hjálp. Þökk sé innbyggðu GPS er iPhone 3G nú mjög nákvæmur hvað þetta varðar.
- 3G er margfalt hraðara en EDGE, allt að 4,8 sinnum hraðvirkara samkvæmt prófunum Gizmodo. Drægni þess er þar að auki mun betri og gefur notendum ekki bara það heldur betri hljómgæði. 3G keyrir á allt annari tíðni en EDGE, en iPhone 3G skiptir sjálfkrafa um það þegar maður fer á milli svæða og hefur ávallt 3G í forgangi. Semsagt; 3G er ekki bara gagnaflutningskerfi fyrir internetið heldur líka hljóð/símtöl.
- Skjárinn hefur lítillega verið bættur og er bjartari og gulari að sögn eigenda. Þetta gagnast sérlega í björtu umhverfi, t.d. úti í sólinni á Austurvelli.
- Hljóð. Innbyggði hátalarinn (sem lagður er að eyranu) er stórbættur að sögn gagnrýnenda, þar auki eru aukning í talgæðum þökk sé 3G. Hátalari fyrir símhringingar og afspilun tónlistar er einnig mun betri en fyrri og er hljóðstyrkur þar að auki hærri. Einnig er heyrnartólatengið ekki lengur innfellt og því hægt að nota það með hvaða heyrnartólum sem er án breyti eða aukasnúru.

- Ný skel og drægni. Drægni er mun betri þökk sé nýju skel iPhone. Til dæmis má nefna dró iPhone 3G 20% lengra á Wi-Fi miðað við eldri gerð. Handtækið liggur mun betur í hendi og þolir meira hnjask og núning við oddhvassa hluti heldur en fyrri álskel.
Ekki enn sannfærð/ur? Ekki gleyma iPhone 2.0..
Eins og nefnt var í upphafi greinar hefur stýrikerfi iPhone verið uppfært í útgáfu 2.0 og hefur að geyma stærstu konfektmolana. Eftirfarandi punktar eru mikilvægastir að mati greinarhöfundar og því er listinn alls ekki tæmandi.
- AppStore er án efa stærsti eiginleiki iPhone 2.0, en það er forrit sem hægt er að nota til þess að kaupa forrit frá 3. aðilum beint í símann í gegnum 3G eða Wi-Fi. Yfir 500 forrit eru til í dag eins og þrívíddarleikir, iTunes fjarstýring, spjall-, frétta-, veðurforrit osfrv. Endalausir möguleikar, alveg eins og við þekkjum einkatölvu í dag. Flest eru ókeypis eða undir $10.
- Microsoft Exchange stuðningur er loksins kominn í tækið. S.k. Push-tækni er innbyggð í símann og nú hægt að tengjast Exchange eða nýju MobileMe þjónustunni frá Apple. Þannig berst tölvupóstur samstundis til manns án biðar, símaskrá uppfærist og skipuleggjari þar að auki samstundis. Hægt er að samstilla tölvu sína við iPhone í gegnum MobileMe (eða ef maður er með Exchange) og eru því upplýsingar alls staðar ávallt uppfærðar.
- Bættur stuðningur við skjöl eins og PowerPoint og Word hefur verið gerður. Þar auki eru ýmsar nýjar stillingar í símanum eins og að stilla á Airplane Mode án þess að slökkva á Wi-Fi. Þetta er stór kostur fyrir þá sem vilja tengjast netinu í flugvélum, en sum flugfélög eru nú byrjuð að prófa notkun á þráðlausu neti í háloftunum.
Varla er síminn fullkominn?
iPhone 3G er langt frá því að vera fullkominn, en verður að teljast einn af fullkomnustu símum nútímans ef notendaviðmót er talið með. Til dæmis má nefna að um 97% af iPhone eigendum nota hann til þess að vafra á netinu. Þessi prósenta er undir tölunni 30 á öðrum símtækjum.
- Enginn MMS-stuðningur. Apple hefur einhvern veginn ekkert hugsað útí að hafa MMS í símanum. Ekki spyrja af hverju, því ekki veit ég svarið. Kannski er það Steve Jobs sem er þrjóskur og vill að allir noti tölvupóst?
- Copy/Paste. Ekki er hægt að afrita texta í iPhone til þess að líma annars staðar, en telja má að Apple bæti við þessum möguleika í næstu uppfærslum.
- Að nota iPhone sem utanáliggjandi drif er ekki möguleiki.
Marga aðra hnökra er hægt að finna í iPhone en þetta myndi ég telja vera þeir stærstu.
Hvenær get ég svo keypt mér iPhone 3G?
Þessari spurningu er best svarað með spurningu beint til símfyrirtækja Íslands: Hvenær kemur iPhone hingað til lands? (svar berist til vefstjori -hjá- maclantic.com)
Eins og nefnt hefur verið á Maclantic þá verður iPhone 3G seldur opinn í löndum á borð við Belgíu. Hann mun kosta frá €525 (63.000 ÍSK m.v. gengisskráningu 11.07.08) og verður hægt að nota með öðrum SIM-kortum samkvæmt MacBidouille. Ókosturinn við að kaupa hann erlendis er sá að ekki er nein íslensk iTunes Store til staðar og þ.a.l. gætum við ekki nýtt okkur App Store, sem ég tel vera stærsti plúsinn í iPhone 2.0. Hægt er að komast hjá því með ýmsum aðferðum eins og þessari: www.maclantic.com/itunes.
Lokaorð
iPhone er án efa byltingarkenndasta smátækið í dag sem nánast allir kunna að nota, því öllu er stýrt með puttanum á snertifleti þess. Fyrir utan að vera með eitt þægilegasta viðmót í nútímasímum hefur iPhone nánast endalausa möguleika í framtíðinni þar sem notandinn getur stillt tækið eftir eigin þörfum þökk sé App Store.
Framtíðin er hér.














þótt Kjörís kaupi sér belju, þá þýðir það ekki að hún fari að mjólka súkkulaðiís upp úr þurru