Apple kærir Psystar

psystar.jpg
Munið þið ekki eftir Psystar OpenComputer sem átti að keyra OS X, vera úr venjulegum íhlutum, keyra breytta útgáfu af Leopard, vera ekki frá Apple og kosta miklu minna en alvöru Apple tölvur? Þetta hljómaði allt voðalega tæpt lagalega séð en samt sem áður er tölvan til og meira að segja seld í þónokkrum útgáfum. Nú hefur Apple loksins tekið sig til og kært Psystar. Ætli sagan sé þá endanlega búin eða munum við sjá Psystar tölvur úti um allt á komandi árum?