föstudagur 12. september 2008 | Kristófer

Samkvæmt áætlun hefur Apple nú gefið út 2.1 uppfærsluna fyrir iPhone og iPhone 3G en hún var nú þegar komin út fyrir iPod touch. Uppfærslan er er sögð laga marga galla en samkvæmt Apple tekur hún á eftirfarandi atriðum:
- decrease in call set-up failures and call drops
- significantly improve battery life for most users
- dramatically reduced time to backup to iTunes
- improve email reliability, notable fetching email from POP and Exchange accounts
- faster installation of 3rd party applications
- fixed bugs causing hangs and crashes if you have lots of 3rd party applications
- improved performance of text messaging
- faster loading and searching of contacts
- improved accuracy of the 3G signal strength display
- repeat alert up to two additional times for incoming text messages
- option to wipe data after ten failed passcode attempts
- Genius playlist creation
Þess má líka geta að í þessari uppfærslu er íslenskt lyklaborð, hvorki meira né minna.
Skrifað í flokkinn: iPhone
14 athugasemdir / Skrifa athugasemd
miðvikudagur 10. september 2008 | Kristófer

Nú er iPod kynningin Let’s Rock ný yfirstaðin en einhverjir vonuðust eftir að sjá nýjar fartölvur frá Apple, sú varð ekki raunin og því var í raun aldrei búist við á þessari kynningu.
Í viðtali við Steve Jobs var hann spurður um nýjar fartölvur en hann svaraði því einfaldlega að þetta væri iPod/iTunes kynning og ræddi þetta ekkert frekar. Öll von er þó ekki úti um nýjar Apple fartölvur á árinu en Daring Fireball segjast hafa heimildir, frá aðilum sem kunnugt eru um framtíðaráætlanir Apple, fyrir því að sérstök fartölvu kynning verði 14. október en bæði MacBook og MacBook Pro eru í raun komnar á tíma varðandi uppfærslu. Búist er við að þær línur fái nýtt útlit ásamt vélbúnaðaruppfærslum en þær hafa í raun verið með sömu hönnun frá 2006.
Þá hafa menn velt því fyrir sér hvort MacBook Air fái einnig minniháttar uppfærslu en núna er 120GB harði diskurinn í iPod Classic sömu stærðar og 80GB diskurinn sem nú er í Macbook Air, væri því vel hægt að skipta honum út.
MacRumors
Skrifað í flokkinn: Orðrómur, MacBook Pro, MacBook, MacBook Air
4 athugasemdir / Skrifa athugasemd
þriðjudagur 9. september 2008 | Kristófer

Apple hefur gefið út Quicktime stream af kynningu Steve Jobs frá því áðan. Hægt er að horfa á það hér.
Góða skemmtun.
Skrifað í flokkinn: Uppákomur, Apple
2 athugasemdir / Skrifa athugasemd
þriðjudagur 9. september 2008 | Kristófer

Í dag steig Steve Jobs á svið á sérstakri kynningu sem haldin var í dag, “Let’s Rock”. Meðal annars voru þar kynntar tvær nýjar gerðir af iPod spilurum.
Nýr iPod Nano var kynntur og verður hann nokkuð svipaður ef ekki eins þeim sem myndir hafa verið að leka á netið af. Spilarinn er aftur kominn með sitt gamla snið, langur og mjór, en nú er hann kúptur og sá þynnsti sem Apple hefur gert. Einnig er spilarinn nú með accelerometer líkt og iPhone/Touch og nýtist hann t.d. til þess að horfa á bíómyndir á breiðtjaldsformi eða einfaldlega hrista spilarann til að stokka. Genius eiginleikinn sem var kynntur í iTunes 8.0 verður einnig hægt að nota í nýja Nano-inum og búa til Genius playlista.
Spilarann verður hægt að fá í öllum regnbogans litum og líf batterísins verður svipað þeim gamla eða 24 klst. fyrir tónlist en 4 klst. fyrir myndskeið. Hann verður seldur í tveimur útgáfum 8GB á $149 og 16GB á $199.

iPod Touch gekk einnig undir útlitsbreytingar í dag eins og iPod Nano. Spilarinn er nú með kúptu stálbaki en er þynnri en sá gamli. Takki til að hækka og lækka er nú á spilaranum auk hátalara, eitthvað sem margir hafa beðið eftir. Notandaviðmótið hefur einnig verið bætt og er nú AppStore, Nike+ og Genius í spilaranum.
Batteríið mun endast í 36klst. fyrir tónlist en 6klst. fyrir myndskeið. Verður hann seldur í þremur útgáfum 8GB á $229, 16GB á $299 og 32GB á $399.
Apple gleymdi ekki iPod classic en hann gekk þó ekki undir eins miklar breytingar og hinir tveir. Hann verður til með óbreyttu útliti í 120GB útgáfu á $249.
iPod Shuffle helst algjörlega óbreyttur í verði og öðru en nú er hann fáanlegur í nýjum litum, þessu var þó ekki sagt frá á kynningunni.
Með nýju spilurunum býður fylgja ný heyrnartól, en á þeim er hægt að hækka/lækka, skipta um lag og einnig eru þau með míkrófón. Einnig voru svo kynnt heyrnartól með tvíter og woofer sem fara inní eyrun á $79 en þau munu koma út í október.
Skrifað í flokkinn: iPod, Uppákomur
6 athugasemdir / Skrifa athugasemd
þriðjudagur 9. september 2008 | Kristófer
Ein af þeim fjölmörgu nýjungum sem kynntar voru í dag er ný uppfærsla fyrir iPhone/iPod Touch.
Þessi uppfærsla á meðal annars að laga marga bögga sem hafa verið til staðar í fyrri útgáfum, bæta batterílíf og gera backup í iTunes hraðvirkara. Uppfærslan mun verða frí fyrir iPhone eigendur en kosta $9.95 fyrir iPod Touch.
Skrifað í flokkinn: iPod, iPhone
3 athugasemdir / Skrifa athugasemd
þriðjudagur 9. september 2008 | Kristófer

Á Let’s Rock kynningunni í dag kynnti Steve Jobs nýja útgáfu af iTunes með nokkrum nýjungum.
Genius playlist er ein þessara nýjunga en það er í raun kerfi sem í raun virkar þannig að iTunes setur saman playlista með lögum útfrá einhverju lagi sem þú velur. Einnig er Genius sidebar að finna í iTunes 8.0 en það er kerfi sem byggir á upplýsingum iTunes notenda og mælir með tónlist úr iTS útfrá þínum smekk.
Svokölluðu Grid view hefur verið bætt við en það býður þér að skoða efnið þitt á nýjan hátt. Auk þessa eru sjónvarpsþættir nú líka seldir í HD gæðum á $2.99 og sjónvarpsstöðin NBC er aftur komin með sína þætti inní verslunina. Rúsínan í pylsuendanum má svo segja að segja að sé nýr vægast sagt flottur visualizer.
Meira um iTunes 8.0 hér.
Skrifað í flokkinn: iTunes
7 athugasemdir / Skrifa athugasemd
mánudagur 8. september 2008 | Kristófer

Kevin Rose, maðurinn sem virðist vera með alla orðróma á hreinu þessa dagana, telur sig vera kominn með það á hreint hvernig nýja iTunes 8.0 verður, en það er einmitt hann sem einnig telur að forritið muni koma út 9. september.
Hann hefur gert teikningu þar sem hann merkir inn alls konar nýjungar. Þar má nefna að hliðarstikan sem geymir smart playlists verður skipt út fyrir genius playlists. Einnig verður genius hliðarstika vinstra megin sem mælir með tónlist úr iTunes Store sem viðkomandi gæti litist á.
Samkvæmt Kevin mun iTunes ennþá hafa 3 valmöguleika til að skoða tónlistina; lista, cover flow en í stðainn fyrir listann með plötuumslögunum verða einfaldlega mörg plötuumslög saman (svipað og plötuumslaga skjáhvílan).
Til viðbótar sagði hann á dögunum að Apple hafi keypt Magnetosphere visulizerinn (sjá meðfylgjandi mynd) og að hann muni fylgja iTunes 8.0.
Nú er maður orðinn ansi spenntur fyrir morgundeginum og gaman verður að sjá hvort allt þetta reynist rétt hjá okkar manni.
-Ég minni svo á Apple Special Event klukkan 17:00 að íslenskum tíma í dag, 09.09.08.
Skrifað í flokkinn: Orðrómur, iTunes
9 athugasemdir / Skrifa athugasemd
laugardagur 6. september 2008 | Bjöggi

Apple mun halda kynningu þann 9. september þar sem áhersla verður lögð á iPod spilarana.
Nú hefur lekið út mynd af nýju gerðinni (að öllum líkindum rétt).
Hvernig líst ykkur á, ef þetta er raunin?
www.engadget.com
Skrifað í flokkinn: iPod
16 athugasemdir / Skrifa athugasemd
fimmtudagur 4. september 2008 | Kristófer

Eftir því sem nær dregur 9. september hafa fleiri myndir af nýja iPod Nano spilaranum komið fram, eða öllu heldur myndir af því sem gæti ef til vill verið hann. Í gær birti iLounge mynd sem sýnir meintar víddir 4G iPod Nano og iPod Touch.

Þær gefa til kynna að Nano-inn verði eins og áður hefur verið talað um, ávalari, en þó með flötum skjá. iPod Touch mun svo ef til vill líkjast iPhone 3G meira og vera með kúptu baki.
Skrifað í flokkinn: iPod, Orðrómur
2 athugasemdir / Skrifa athugasemd
þriðjudagur 2. september 2008 | Bjöggi

Apple hefur gefið út boðskort til fjölmiðla um sérstaka uppákomu þann 9. september í San Francisco.
Eins og orðrómurinn hefur sagt undanfarna daga er búist við nokkuð stórri uppfærslu á iPod nano og touch, en aðrir gera ráð fyrir nýjum MacBook og MB Pro.
Persónulega tel ég þetta höfða einungis til iPod, sérstaklega ef litið er á kortið hér að ofan.
Engadget
Skrifað í flokkinn: Uppákomur
7 athugasemdir / Skrifa athugasemd