MacBreak

Eins og þeir lýsa því sjálfir: „The only Macintosh show you’ll ever need.“

Í þessu vídeópodvarpi er fjallað um Mac; vélbúnað, hugbúnað og ýmis ráð. Hver þáttur inniheldur viðtal við „áhugaverðasta fólkið í Mac-heiminum“ að þeirra sögn.

Skemmtilegt podvarp sem er vert að kíkja á!

Heimasíða / Gerast áskrifandi

MacTV

MacTV podvarp býður uppá nánast öll makkatengd efni á video. Höfundur þess gefur út podvarpið reglulega með ýmis efni, svosem Apple auglýsingar, promo og intro video, hluta af þáttum í sjónvarpinu þar sem talað er um eða sýndar Apple vörur. Podvarpið er algjört nauðsyn fyrir rótgrónna Apple aðdáendur.

Heimasíða / Gerast áskrifandi / iPod útgáfa

commandN

Frábært podcast um allt tengt tölvum, þá aðallega Mac. Amber “hot” Mac og Mike “mega nörd” Lazazzera sjá um að halda áhorfendum við efnið.

Gerast áskrifandi

Inside Mac Games

Podvarp um það sem er að gerast í Mac-leikjaheiminum.

Gerast áskrifandi

Channel Frederator

Channel Frederator er frábært video podvarp fyrir teiknimynda unnendur og iPod video eigendur. Podvarpið kemur út vikulega og er ókeypis.

Heimasíða / Gerast áskrifandi

Fanboy Radio

Fanboy Radio er einn besti útvarpsþátturinn um teiknimyndasögur og oft koma frægir höfundar og teiknarar í heimsókn.

Heimasíða

Science Friday

Vikulegt podvarp um allt á milli himins og jarðar í heimi vísindanna.

Gerast áskrifandi


Kommentið á thors:


þótt Kjörís kaupi sér belju, þá þýðir það ekki að hún fari að mjólka súkkulaðiís upp úr þurru
Nánar..

Nýjasta Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!